Landsvirkjun tekur þátt í Parísaráheitinu

11.09.2025Samfélag, Umhverfi

Markmið Evrópu er að ná kolefnishlutleysi fyrir 2050, en þá er gert ráð fyrir að allt að 86% orkuvinnslu í Evrópu fari fram með vindi og sól, sem eru óstöðugir orkugjafar.

Óli Grétar undirritar áheitið fyrir hönd Landsvirkjunar í París 9. september
Óli Grétar undirritar áheitið fyrir hönd Landsvirkjunar í París 9. september

Orkufyrirtæki í Evrópu standa saman

Lesa má nánar um verkefnið hér

Landsvirkjun, ásamt öðrum orkufyrirtækjum og samtökum í Evrópu, tekur þátt í Parísaráheitinu (e.The Paris Pledge). Markmið Evrópu er að ná kolefnishlutleysi fyrir 2050, en þá er gert ráð fyrir að allt að 86% orkuvinnslu í Evrópu fari fram með vindi og sól, sem eru óstöðugir orkugjafar.

Orkufyrirtækin sem standa að áheitinu vilja trygga raforkuöryggi í Evrópu með byggingu nýrra vatnsaflsvirkjana og dæluvirkjana, og skapa þannig sveigjanleika og langtímaorkugeymslu sem hægt er að grípa til þegar vindurinn blæs ekki og sólin skín ekki. Í því samhengi er skorað á Evrópusambandið og aðildarlönd að breyta löggjöf og raforkumarkaði á þann hátt að leyfisferlar verði straumlínulagaðir og að greitt verði fyrir þá kerfisþjónustu sem þarf til að raforkuöryggi sé tryggt.

Óli Grétar Sveinsson, forstöðumaður Þróunar vatnsafls, sótti ráðstefnu Alþjóðlegu vatnsaflssamtakanna (IHA) í París í vikunni og undirritaði áheitið fyrir hönd Landsvirkjunar.

„Á Íslandi skiljum við vel mikilvægi miðlunarlóna og þann sveigjanleika sem þau tryggja gagnvart raforkuvinnslu,“ segir Óli Grétar. „Á Íslandi er nú þegar 100% endurnýjanlegt orkukerfi, bæði í rafmagni og hitun, vegna nýtingar á vatnsafli og jarðvarma, þökk sé fyrirhyggju fyrri kynslóða. Okkar reynsla er gríðarlega dýrmæt inn í þessi stóru verkefni í Evrópu og sýnir að hægt er að reka 100% endurnýjanlegt raforkukerfi og við munum svo sannarlega leggja okkar lóð á vogarskálarnar.“