Samstarf um orkuskipti í flugi

09.02.2022Orka
Að lokinni undirritun samnings um samstarf: Landsvirkjunarfólkið Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður á sviði Viðskiptaþróunar og nýsköpunar, Laufey Lilja Ágústsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri á sama sviði, Ríkarður Ríkarðsson, framkvæmdastjóri sviðsins og Hörður Arnarson forstjóri og Icelandairfólkið Bogi Nils Bogason forstjóri, Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni og Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri rekstrar.

Landsvirkjun og Icelandair ætla að taka höndum saman við þróun lausna í orkuskiptum í flugi á Íslandi. Saman ætla fyrirtækin að leggja mat á núverandi stöðu og undirbúa verkefni, sem munu stuðla að framgangi í orkuskiptum í flugi.

Samkomulag um verkefnið var undirritað í gær, en það er til tveggja ára til að byrja með. Í því koma fram þrjú markmið. Hið fyrsta er að leggja mat á möguleika þess að hrinda í framkvæmd þróunarverkefni, þar sem fyrstu skref orkuskipta í flugi yrðu stigin. Sem dæmi um slíkt mætti nefna verkefni um nýtingu á sjálfbæru eldsneyti, grænu vetni eða rafmagni sem orkubera í flugi á Íslandi. Annað markmiðið er að skapa vettvang hagaðila og stuðla að samvinnu varðandi orkuskipti í flugi og í þriðja lagi er stefnt að því að fræða almenning og hagaðila um mikilvægi orkuskipta í flugi og hvaða skref þarf að taka.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir mjög ánægjulegt að orkufyrirtæki þjóðarinnar og stærsta flugfélagið hafi ákveðið að leggjast saman á árarnar, til að vinna að orkuskiptum í flugi. „Orkuskipti í samgöngum eru óhjákvæmileg og þau eru þegar á fullri ferð að því er fólksbílana varðar. Við þurfum líka að finna lausnir fyrir þungaflutninga, skip og flugvélar og það er ekki eftir neinu að bíða.“

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að flugfélagið bindi góðar vonir við að samstarfið muni skila raunhæfum, sameiginlegum tækifærum. „Óskastaðan er sú að Ísland verði í fararbroddi í orkuskiptum í flugi. Fyrst um sinn er raunhæft að horfa til orkuskipta í innanlandsflugi en við erum í einstakri stöðu hér á landi vegna stuttra flugleiða innanlands og aðgengis að grænni orku. Auk þess getur lega landsins milli Evrópu og Norður Ameríku skapað tækifæri þegar kemur að orkuskiptum í millilandaflugi.“