Sjálfbærniásinn aftur til Landsvirkjunar
Sjálfbærniásinn er samræmdur mælikvarði sem mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum og gerir samanburð á stöðu og þróun á mörkuðum. Viðurkenningar eins og þessar sýna að við hjá Landsvirkjun erum að gera vel og við ætlum að halda áfram á sömu braut.
Rannsóknarfyrirtækið Prósent, ráðgjafafyrirtækið Langbrók og stjórnendafélagið Stjórnvísi standa að Sjálfbærniásnum, en markmið hans er m.a. að hvetja íslensk fyrirtæki og stofnanir til þess að leggja enn meiri áherslu á sjálfbærni og miðla upplýsingum um verk sín, auk þess að auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geti haft áhrif með kauphegðun sinni.
Hildur Harðardóttir, verkefnisstjóri loftslags og áhrifastýringar og María Kjartansdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærni, tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Landsvirkjunar.