Skerðingar hjá stórnotendum syðra
Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á suðvesturhluta landsins, Elkem, Norðuráli og Rio Tinto og fjarvarmaveitum að skerða þurfi orku til starfsemi þeirra. Þessir notendur hafa ekki sætt skerðingum fyrr á þessum vetri. Skerðingarnar hefjast 19. janúar nk. og gert er ráð fyrir að þær geti staðið allt til 30. apríl. Það fer þó eftir vatnsbúskap á tímabilinu.
Staðan hefur enn versnað frá síðasta mánuði, þegar grípa þurfti til takmörkunar á afhendingu víkjandi orku til fiskimjölsverksmiðja og fiskþurrkana, auk gagnavera sem stunda rafmyntagröft.
Desember var verulega þurr mánuður syðra og lónstaða Þórisvatns með versta móti. Innrennsli í Þórisvatn þetta haustið er innan verstu 5% sem sést hafa. Áætlanir sýna að yfirborð Þórisvatns gæti farið niður fyrir 562 m yfir sjávarmáli í vor sem hefur aðeins gerst einu sinni, en lægst hefur lónið áður farið í 560,3 m.y.s. vorið 2014.
Þetta dræma innrennsli leiðir til þess að skerða þarf afhendingu orku um allt að 200 GWst til viðbótar við það sem áður hefur verið tilkynnt. Gert er ráð fyrir fullri nýtingu skerðingarheimilda í þeim samningum sem um ræðir, en skerðingarheimildin er mismunandi eftir samningum. Almennt nemur skerðingin um 10% á mánuði, en það er þó misjafnt eftir samningum, m.a. eftir því hversu hratt fyrirtækin geta dregið úr orkunotkun sinni.





