S&P hækkar horfur á lánshæfismati Landsvirkjunar í jákvæðar
Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur hækkað horfur á lánshæfismati Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar horfur. Þá hefur fyrirtækið jafnframt staðfest A- lánshæfiseinkunn fyrirtækisins.
Að mati S&P endurspegla jákvæðar horfur einkum hækkun á horfum íslenska ríkisins fyrr í mánuðinum og áframhaldandi mat á miklum líkum á stuðningi íslenska ríkisins við Landsvirkjun ef á þyrfti að halda.
S&P telur rekstur Landsvirkjunar traustan og gerir ráð fyrir að fjárhagsstaða fyrirtækisins verði áfram sterk á næstu misserum og rekstrarumhverfið hagstætt. Þá bendir matsfyrirtækið á lykilhlutverk Landsvirkjunar í íslensku efnahagslífi en félagið framleiðir yfir 70% af raforku landsins.





