Staða miðlunarlóna með ágætum
Staða í miðlunarlónum Landsvirkjunar er með ágætum nú í lok júní. Innrennsli á vatnasviðum Landsvirkjunar það sem af er þessu ári hefur verið hagfellt og vorflóðin í maí skiluðu sér vel inn í lónin, t.d. fór Blöndulón á yfirfall tímabundið í lok maí. Hægt hefur á vatnssöfnun nú í júní, en í júlí eykst afrennsli af jöklum sem skilar sínu, sérstaklega í Hálslón.
Allar líkur eru á að Blöndulón og Hálslón fyllist í sumar, eins og undanfarin sumur. Þá teljast núna góðar líkur á að Þórisvatn fyllist, en það gerðist síðast haustið 2019. Þórisvatn stendur nú þegar 2 metrum hærra en hæsta staða var haustið 2024. Því er útlitið þannig að ekki þurfi að grípa til takmarkana á afhendingu raforku vegna vatnsskorts næsta vetur.