Stefnt á skammtímamarkað á næsta ári
Landsvirkjun reiknar með því að hefja sölu skammtímaorku á markaðstorgum raforku fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2026. Mikil og ör þróun er nú á umgjörð skammtímamarkaðar raforku, en skýr umgjörð um markaðinn mun styrkja virkni hans.
Orkufyrirtæki þjóðarinnar tilkynnti í júlí sl. að það áformaði sölu skammtímaorku á markaðstorgum Vonarskarðs og Elmu frá hausti 2025, en fram að þessu hefur Landsvirkjun selt skammtímaorku á eigin viðskiptavef. Þessum áformum hefur nú verið frestað en engu að síður vinnur Landsvirkjun áfram að undirbúningi þátttöku.





