Vatnshæð Þórisvatns í sögulegu lámarki

Orka

Stöð 2 sagði í vikunni frá vatnsbúskapnum okkar og hvernig fyllingu uppistöðulóna miðar, þá sérstaklega í Þórisvatni.

Vatnshæðin í Þórisvatni er í sögulegu lágmarki, enda síðasti vetur og vor þurrt og kalt og innrennsli vel undir meðallagi. Hlýindi undanfarið hafa hins vegar aukið rennsli í Þórisvatn verulega, eins og fram kemur í fréttinni.

Það þýðir ekki að hægt sé að ganga út frá því að það fyllist að yfirfalli en rétt að árétta, að við hjá Landsvirkjun bindum vonir við að Þórisvatn fyllist nægjanlega til að ekki komi til skerðinga á afhendingu orku.

Hægt er að fylgjast með vatnshæð lóna sem uppfærist daglega á vöktunarsíðu vefs Landsvirkjunar: www.landsvirkjun.is/voktun

Skoða fréttina á Stöð 2