Stólpi reisir vinnubúðir við Hvamm

10.06.2025Hvammsvirkjun, Business
Sigrún Elva Reynisdóttir, sérfræðingur á innkaupadeild Landsvirkjunar Sigurður Óli Guðmundsson, verkefnisstjóri undirbúningsframkvæmda Hvammsvirkjunar Ólöf Rós Káradóttir, yfirverkefnisstjóri Hvammsvirkjunar Börkur Grímsson, forstjóri Stólpa Rúnar Höskuldsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Stólpa

Svefneiningar, heilsugæsla og skrifstofur

Landsvirkjun og Stólpi hafa skrifað undir samning um gerð vinnubúða við Hvammsvirkjun.

Verkið felur í sér smíði á færanlegum vinnubúðaeiningum og undirstöðum, flutningi, uppsetningu og frágangi á einingum og undirstöðum, ásamt lagningu og tengingu lagna frá vinnubúðaeiningunum að tengipunktum veitustofna á svæðinu.

Í þessum áfanga verða reistar svefneiningar fyrir 32 manns, aðstaða fyrir heilsugæslu, mötuneyti, skrifstofu og heilsurækt. Vinnubúðirnar verða í landi Hvamms 3 við Hvammsveg í Rangárþingi ytra. Unnið hefur verið að undirbúningi við innviði á svæðinu undanfarið.

Vinnubúðirnar verða komnar upp í lok árs

Fimm tilboð bárust í verkið og var hagstæðasta tilboði tekið, byggt á verði og gæðamati. Hefur nú verið gengið frá samningi við Stólpa og hófst verkið formlega sl. föstudag, 6. júní 2025. Upphæð samningsins nemur 866 milljónum kr. Áætlanir miða við að vinnubúðirnar verði komnar upp fyrir lok árs.