Þjónustuhús fyrir Vaðölduver

Fyrsta skóflustunga að nýju þjónustuhúsi Landsvirkjunar á Hellu var tekin í dag, 6. maí. Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, tók skóflustunguna fyrir hönd Landsvirkjunar, Eggert Valur Guðmundsson, oddviti sveitarstjórnar Rangárþings ytra fyrir sveitarfélagið og Magnús Þór Magnússon, framkvæmdastjóri Aleflis, fyrir hönd verktaka.
Húsið mun þjóna starfsemi tengdri Vaðölduveri, fyrsta vindorkuveri Íslands, og markar mikilvægt skref í uppbyggingu innviða fyrir rekstur vindorku hér á landi.
Í þjónustuhúsinu verður aðstaða fyrir starfsfólk Enercon, framleiðanda vindmyllanna í Vaðölduveri, auk starfsstöðvar Landsvirkjunar. Þar verða jafnframt verkstæði og geymslur fyrir varahluti í vindmyllurnar.







