Þóra Arnórsdóttir til Landsvirkjunar

07.02.2023Fyrirtækið

Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun.

Þóra Arnórsdóttir, nýr forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar
Þóra Arnórsdóttir, nýr forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar

Þóra er þekkt fjölmiðla- og heimildarmyndagerðarkona og hefur starfað við frétta- og dagskrárgerð í um aldarfjórðung. Hún hefur unnið bæði í útvarpi og sjónvarpi, hjá Stöð 2 og RÚV, síðustu ár sem ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks.

Þóra var einnig stundakennari við Háskóla Íslands um árabil þar sem hún kenndi alþjóðastjórnmál. Hún hefur átt farsælan feril og hlotið mörg verðlaun og tilnefningar fyrir störf sín í gegnum tíðina. Þóra er með B.A. gráðu í heimspeki frá HÍ og Háskólanum í Genúa á Ítalíu og M.A. gráðu í alþjóðastjórnmálum og þróunarhagfræði frá Johns Hopkins SAIS, Bologna og Washington DC.

Það er ánægjulegt fyrir Landsvirkjun að fá Þóru til liðs við fyrirtækið. Reynsla hennar og þekking mun koma sér vel í þeim áhugaverðu verkefnum og framkvæmdum sem fram undan eru. Nú sem endranær leggur Landsvirkjun mikla áherslu á samvinnu og góð samskipti við almenning, aðra hagaðila og nærsamfélög, samhliða innri upplýsingagjöf til starfsfólks. Það er mikilvægt að hafa öflugan einstakling til að leiða slík verkefni.