Tilboð frá sex sölufyrirtækjum

28.01.2022Viðskipti

Alls bárust tilboð frá sex sölufyrirtækjum í 12 MW af mánaðarblokkum, en Landsvirkjun leitaði tilboða í 5 MW í upphafi vikunnar. Meðalverð samþykktra tilboða var 8.907 kr/MWst. Áður höfðu sölufyrirtækin fest kaup á um 27 MW í mánaðarblokkum á verðinu 6.420 kr/MWst. Verðið í tilboðsleitinni var því 39% hærra.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun 25. janúar kom fram að ekki var unnt að verða við öllum beiðnum sölufyrirtækja um frekari kaup á mánaðarblokkum og breytilegri orku fyrir febrúar og óskaði Landsvirkjun eftir tilboðum í þá raforku sem hægt er afhenda á heildsölumarkaði, alls 23 MW í afli (11,5 GWst í orku) til endursölu. Frestur til að skila inn tilboðum rann út kl. 10 fimmtudaginn 27. janúar. Sex sölufyrirtæki af 8 skiluðu inn tilboðum.

Þá bárust tilboð í 41 MW/18.450 MWst af breytilegri orku en tilboða var leitað í 18 MW/8.100 MWst. Meðalverð samþykktra tilboða var 10.615 kr/MWst. Áður höfðu sölufyrirtækin fest kaup á um 29.000 MWst á meðalverðinu 7.208 kr/MWst. Verðið í tilboðsleitinni var því 47% hærra.

Landsvirkjun selur forgangsorku til sölufyrirtækja með grunnorkusamningum til allt að fimm ára, mánaðarblokkum og breytilegri orku til allt að 18 mánaða og á skammtímamarkaði, þar sem kaupa má orku með allt að 14 daga fyrirvara. Framboð á skammtímamarkaði tekur mið af stöðu raforkukerfis Landsvirkjunar hverju sinni. Landsvirkjun mun bjóða sambærilegt magn á skammtímamarkaði í febrúar eins og í janúar.

Þau sölufyrirtæki sem fengu tilboð sín ekki samþykkt fyrir febrúar geta keypt orku á skammtímamarkaði.