Orkusýningu Landsvirkjunar í Ljósafossstöð við Sogið verður lokað tímabundið frá og með morgundeginum 7. mars vegna COVID-19. Ekki er grunur um smit og er eingöngu um varúðarráðstöfun að ræða.
Takmarkanir á móttökum gesta
Jafnframt hefur verið tekin ákvörðun um að lágmarka heimsóknir og móttökur í húsnæði og starfsstöðvar Landsvirkjunar eins og hægt er. Móttökum á skipulögðum heimsóknum hópa hefur verið aflýst þangað til annað verður ákveðið.