„Rekstur Landsvirkjunar gekk vel á fyrsta fjórðungi ársins. Tekjur af raforkusölu jukust um 10% frá fyrra ári og rekstrartekjur námu 165 milljónum bandaríkjadala. Hagnaður af grunnrekstri nam 88 milljónum dala, eða um 11 milljörðum króna. Raforkuverð til stórnotenda hækkaði nokkuð á milli ára, einkum vegna hækkunar álverðs, sem studdi við tekjuvöxtinn.
Uppbygging Vaðölduvers gengur vel og helmingur vindmyllanna verður tekinn í rekstur síðar á þessu ári. Framkvæmdir við Hvammsvirkjun ganga einnig vel og gert er ráð fyrir að þær verði komnar á fulla ferð í lok ársins. Fjárhagsstaða Landsvirkjunar er áfram sterk. Nettó skuldir lækkuðu úr 677 milljónum um áramót í 659 milljónir dala í lok fyrsta fjórðungs, eiginfjárhlutfallið er áfram sögulega hátt eða 65% og skuldsetning er 1,7-sinnum rekstrarhagnaður fyrir afskriftir.
Þá bárust þau jákvæðu tíðindi að álver Norðuráls á Grundartanga kemst mun fyrr í fullan rekstur en áætlað hafði verið og að Landsvirkjun er tryggð fyrir því tekjutapi sem fyrirtækið hefur orðið fyrir vegna bilunarinnar í októbermánuði síðastliðnum. Rekstur aflstöðva gekk vel á tímabilinu og vatnsbúskapur er með ágætum.“