Um vatnsbúskap og vinnslukerfi Landsvirkjunar

11.12.2021Orka
Gunnar Guðni Tómasson er framkvæmdastjóri vatnsafls hjá Landsvirkjun.
Gunnar Guðni Tómasson er framkvæmdastjóri vatnsafls hjá Landsvirkjun.

Það kemur verulega á óvart að í aðsendri grein forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur á Vísi þann 10. desember sl. skuli fjallað um vatnsbúskap og skerðingar Landsvirkjunar og ýjað að því að til sé næg vinnslugeta í raforkukerfi landsmanna til að fullnægja orkuskiptum framtíðarinnar.

Staðreyndirnar eru þessar

Landsvirkjun vinnur og selur yfir 70% af raforku á Íslandi og rekur stærsta vinnslukerfi landsins með aflstöðvum og tilheyrandi miðlunarlónum fyrir vatnsaflsstöðvar, sem forstjóri OR virðist hafa miklar skoðanir á hvernig hægt sé að reka.

Samanlagt uppsett afl í vinnslukerfi Landsvirkjunar er nú um 2150 MW, þar af um 2000 MW í vatnsafli. Til samanburðar er heildar uppsett afl raforku á landinu um 3000 MW. Frá árinu 2014 hefur Landsvirkjun gangsett þrjár nýjar aflstöðvar með uppsett afl 285 MW og jafnframt aukið vinnslugetu í kerfi sínu með ýmsum aðgerðum.

Sveigjanleiki í raforkusamningum

Staðreyndin er sú að orkuvinnslukerfi Landsvirkjunar er full selt um þessar mundir. Viðskiptavinir hafa hins vegar ákveðinn sveigjanleika, mismikinn eftir samningum, til að fullnýta ekki samningana þegar illa árar hjá þeim, líkt og til dæmis gerðist árið 2020 og fyrstu mánuði þessa árs. Á móti hefur Landsvirkjun sveigjanleika til skerðinga þegar illa árar í vatnsbúskapnum. Orku, sem er þegar samningsbundin viðskiptavinum, er ekki hægt að nýta í orkuskipti framtíðarinnar.

Ítrekuð vinnslumet slegin

Frá síðari hluta ársins 2020 hefur eftirspurn eftir vörum viðskiptavina okkar aukist og afurðaverð þeirra hækkað, sem er jákvætt fyrir Landsvirkjun, viðskiptavini fyrirtækisins og allt þjóðarbúið. Mikil eftirspurn er því eftir raforku í landinu og hefur hún vaxið mjög hratt undanfarnar vikur og mánuði. Vinnslumet hafa ítrekað verið slegin í vinnslukerfi Landsvirkjunar, nú síðast föstudaginn 3. desember þegar vinnsla fyrirtækisins fór í fyrsta skipti yfir 1900 MW. Við slíkar aðstæður verður mjög þröngt um tiltækt afl í vinnslukerfi Landsvirkjunar og það í raun alveg upp urið.

Engin laus orka í vinnslukerfi Landsvirkjunar

Með þessari miklu eftirspurn eftir raforku er vinnslukerfi Landsvirkjunar fullselt og í raun er veruleg umframeftirspurn eftir raforku um þessar mundir sem ekki er hægt að mæta. Þetta á við jafnvel þótt vatnsbúskapur væri eins og í meðalári og vinnslugeta Landsvirkjunar væri óskert. Við núverandi aðstæður er því engin laus orka í vinnslukerfi Landsvirkjunar.

Þröng staða í vatnsbúskapnum

Við þetta bætist að staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar er þröng um þessar mundir vegna lítils innrennslis til miðlunarlóna. Vinnslugetan er því að nokkru leyti skert frá því sem hún væri í meðalári og er það ástæða þess að fyrirtækið hefur þurft að grípa til takmarkana á afhendingu orku til tiltekinna viðskiptavina á undanförnum dögum.

Hvar er laus orka?

Við hjá Landsvirkjun getum ekki tjáð okkur um orkuvinnslu annarra fyrirtækja á raforkumarkaði á Íslandi. En ef lausa orku er að finna á raforkumarkaðnum þá er hana að finna hjá einhverjum öðrum aðila en Landsvirkjun.

Mikilvægt er að vanda alla umræðu sem snýr að orkuöryggi þjóðarinnar og hvernig sé hægt að tryggja nauðsynleg orkuskipti framtíðarinnar og jafnframt að byggja þá umræðu á staðreyndum.

Greinin á Vísi.