Vatnsbúskapur tók stökkbreytingum
Öll miðlunarlón Landsvirkjunar voru full í upphafi nýs vatnsárs, 1. október sl. Vatnsbúskapurinn tók stökkbreytingum milli ára og Þórisvatn fylltist í fyrsta skipti frá 2019. Horfur eru því góðar og engar vísbendingar um að skerða þurfi afhendingu á raforku til stórnotenda á komandi vetri, eins og verið hefur raunin undanfarin ár.
Eftir eitt erfiðasta vatnsár í rekstrarsögu Landsvirkjunar er staðan nú allt önnur og betri. Innrennsli nýliðins vatnsárs var sérstaklega gott í Fljótsdal og í Blöndu og var í meðallagi á Þjórsársvæði, sem dugði þó til að fylla Þórisvatn. Niðurdráttur lóna hefst ekki fyrr en í síðustu viku október.





