Líkt eftir slysi innst í göngunum
Æfingin var sett upp þannig að líkt var eftir slysi innst í göngunum, á því svæði þar sem verktakinn LNS vinnur að framkvæmdum. Framkvæmt var útkall sem fór í gegnum viðbragðsaðila 112, stjórnstöðvar Landsvirkjunar og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU). Í kjölfarið fóru viðbragðskerfi á verkstað í gang og starfsmenn brugðust við samkvæmt þeim ferlum sem skilgreindir eru í öryggis- og viðbragðsáætlunum verkefnisins.
Viðbragðsaðili HSU kom á staðinn og fékk fylgd inn í göngin að hinum sviðsetta slysstað. Þar var æft hvernig staðið skuli að fyrstu viðbrögðum, samskiptum, aðgengi viðbragðsaðila og rýmingu við aðstæður sem líktust raunverulegu slysi í neðanjarðarmannvirki.












