Við þurfum hagkvæmu virkjunarkostina
Við þurfum meiri raforku á næstu árum og áratugum. Víðtæk samstaða hefur náðst um að kerfið okkar verði að vera skilvirkara, svo virkjunarkostir lendi ekki í margra ára, jafnvel áratuga skilvindu stjórnsýslunnar þar sem tímafrestir eru ekki virtir og mörg tækifæri eru til að kæra þau fjölmörgu leyfi sem veitt eru fyrir hverri virkjanaframkvæmd.
Í þessari stöðu er ekki tilefni til að setja álitlega virkjunarkosti í verndarflokk rammaáætlunar; virkjunarkosti sem Alþingi hefur áður metið að eigi heima í biðflokki. Því miður hefur meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar lagt til að vísa Skatastaðavirkjun í verndarflokk, en sá kostur var áður settur í biðflokk 2022. Hins vegar er mjög ánægjulegt að sjá að meirihlutinn hafnar því að færa Kjalölduveitu úr biðflokki í verndarflokk, með vísan til þess að það þurfi að vera hafið yfir allan vafa að virkjunarkosturinn hafi fengið fullnægjandi málsmeðferð.