Viðurkenning vegna sjálfbærni

15.05.2026Umhverfi, Samfélag

Landsvirkjun hlaut á dögunum viðurkenningu Sjálfbærniássins 2026 í flokki opinberra fyrirtækja, þriðja árið í röð.

Ívar Kristinn Jasonarson sérfræðingur og Helga P. Finnsdóttir verkefnisstjóri, á deild Loftslags og sjálfbærni, tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Landsvirkjunar.
Ívar Kristinn Jasonarson sérfræðingur og Helga P. Finnsdóttir verkefnisstjóri, á deild Loftslags og sjálfbærni, tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Landsvirkjunar.

Fremst opinberra fyrirtækja

Meira um Sjálfbærniásinn

Landsvirkjun hlaut viðurkenningu Sjálfbærniássins 2026 í flokki opinberra fyrirtækja. Þetta er þriðja árið í röð sem orkufyrirtæki þjóðarinnar fær þessa ánægjulegu viðurkenningu.

Sjálfbærniásinn metur viðhorf almennings til frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærni. Markmiðið er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á viðhorfi til vörumerkja í tengslum við frammistöðu þeirra varðandi sjálfbærni. Rannsóknarfyrirtækið Prósent, ráðgjafafyrirtækið Langbrók og stjórnendafélagið Stjórnvísi standa að Sjálfbærniásnum.

Í ár fékk Landsvirkjun 68 stig af 100 mögulegum sem er tveimur stigum meira en í fyrra. Við enduðum í efsta sæti opinberra fyrirtækja og níunda sæti allra fyrirtækja sem mælingin náði til.