Vindorka og vatnsafl vinna vel saman
Vordís sagði vindorku eiga fullt erindi inn í íslenska orkukerfið, en mikilvægt væri að uppbyggingin yrði skynsamleg og varfærin.
Vindorka og vatnsafl geta unnið sérstaklega vel saman. Þegar vindurinn framleiðir raforku er hægt að draga úr vatnsnotkun í vatnsaflsvirkjunum og varðveita vatn í miðlunarlónum til síðari nota. Vordís líkti þessu við hleðslu á rafhlöðu þar sem lónin gegna í raun hlutverki geymslu.
Samspilið er einnig hagstætt yfir árið. Vindorka skilar almennt meiri vinnslu yfir vetrarmánuðina, á sama tíma og innrennsli í miðlunarlón vatnsaflsvirkjana er minna.







