Vinnum hratt og vinnum saman
Vísindin eru skýr, við erum að ganga of hratt á auðlindir jarðar og á hraðri leið að kollvarpa stöðugleika lykilkerfa plánetunnar sem við öll eigum saman. Vísindafólk um allan heim er sammála um þetta – loftslagsbreytingar ógna tilvist okkar og við erum að valda þeim.
Vísindafólk um allan heim er líka sammála um að við verðum að halda hlýnun innan 1,5°C. Með hverju broti úr gráðu yfir 1,5°C eykst hættan á breytingum í veðurfari með óafturkræfum afleiðingum fyrir náttúru, samfélög og efnahagskerfi. Vísindin sýna að við erum í hættu, losun hækkar enn og hlýnunin er að verða hraðari. Við erum á mörkum þess að fara yfir þennan þröskuld.
Það jákvæða er að við vitum hvað veldur loftslagsbreytingum; bruni jarðefnaeldsneytis og ósjálfbær fæðuöflun. Það jákvæða er líka að við höfum lausnir sem geta komið okkur á rétta braut og að margar þeirra eru nú þegar hagkvæmari, notendavænni og einfaldlega betri en úrelt tækni jarðefnaeldsneytisaldarinnar.
Það hefur náðst árangur í loftslagsmálum á heimsvísu en betur má ef duga skal.
Frá því að Parísarsáttmálinn var undirritaður fyrir 10 árum hefur margt gerst. Þá stefndum við í 3,6°C hlýnun en stefnum nú í 2,6°C. Það er betra og sýnir að loftslagsráðstefnur Sameinuðu þjóðanna hafa áhrif og hreyfa við hlutunum. Það sýnir líka að við getum breytt hegðun okkar en við þurfum að vinna hraðar. Þar að auki sýna vísindin að ef þau markmið nást sem heimurinn náði saman um á loftslagsráðstefnunni árið 2023 í Dubai (COP28) gætum við með raunhæfum hætti náð að halda hlýnun við 1,7°C innan aldarinnar. Þetta eru markmiðin um að þrefalda endurnýjanlega orkuvinnslu, tvöfalda aðgerðir í bættri orkunýtni og draga verulega úr losun metan fyrir 2030 og halda svo áfram þeirri braut í átt að útfösun jarðefnaeldsneytis.
En til að þetta verði að veruleika verðum við að vinna hraðar og vinna saman.





