Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað

12.12.2025Hvammsvirkjun

Umhverfis- og orkustofnun hefur endurútgefið virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar. Fyrra leyfi var fellt úr gildi með dómi Hæstaréttar 9. júlí sl., með vísan til þess að stofnunina hefði skort lagastoð til að heimila breytingu á vatnshloti. Áður en dómur Hæstaréttar féll hafði Alþingi samþykkt ný lög til að bæta þar úr. Að fengnu virkjunarleyfi sækir Landsvirkjun nú um framkvæmdaleyfi til viðkomandi sveitarfélaga.

Tölvugerð mynd af mannvirkjum Hvammsvirkjunar
Tölvugerð mynd af mannvirkjum Hvammsvirkjunar

Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað

Nánar á vef Hvammsvirkjunar

Undirbúningsframkvæmdir ganga vel

Ýmsar undirbúningsframkvæmdir hafa staðið liðna mánuði. Útbúið hefur verið plan fyrir vinnubúðir, lagt að þeim vatn og rafmagn og búðirnar reistar að hluta, auk þess sem vegur að virkjunarsvæðinu var breikkaður og lagfærður og nýr vegur lagður innan virkjunarsvæðisins. Efni til vegagerðar fékkst úr fyrirhuguðum frárennslisskurði, m.a. í nýjan Búðafossveg. Brú á veginum yfir Þjórsá tengir saman sveitarfélögin Rangárþing ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepp.

Þessar framkvæmdir hafa byggst á virkjunarleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun veitti til bráðabirgða fyrir framkvæmdum sem ekki eru í eða við vatnsfarveg eða grunnvatn og hafa því hvorki bein né óbein áhrif á vatnshlot. Rangárþing ytra gaf út framkvæmdaleyfi í samræmi við þessi skilyrði.

Samfella í verkefninu

Það skiptir okkur miklu að fá virkjunarleyfið núna svo halda megi samfellu í verkinu. Stórt jarðvinnuverk verður boðið út síðar í mánuðinum og fleiri stór útboð eru í undirbúningi á næsta ári, svo sem enn meiri jarðvinna, byggingarvirki og ýmiss raf- og stjórnbúnaður, með það fyrir augum að hefja eiginlegar virkjunarframkvæmdir næsta vor.