Fjölbreytt verkefni fengu styrki
Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun og stjórnarformaður Orkurannsóknasjóðs, bauð gesti velkomna. Hún rifjaði upp tilgang Orkurannsóknasjóðs: að efla rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála, hvetja námsmenn til að velja sér viðfangsefni á þessu sviði og gera fjárframlög Landsvirkjunar til orku- og umhverfistengdra rannsókna sýnilegri. Að baki liggur framtíðarsýn Landsvirkjunar, sjálfbær heimur knúinn endurnýjanlegri orku.
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar var settur á laggirnar árið 2007 eða fyrir tæpum 20 árum. Á þeim tíma hefur áhersla á rannsóknir sem tengjast endurnýjanlegri orku hér á landi aukist. Jóna sagði mikið ánægjuefni að sjá hve mörg veldu nú að fara inn á þessa braut.
Við úthlutun styrkja í ár var sérstök áhersla á auðlindamat og bætta nýtingu auðlinda, viðhorf almennings og samfélagsábata orkuvinnslu og líffræðilega fjölbreytni og aðlögun að loftslagsbreytingum.
Verkefnin 23 sem fengu styrk skiptast nokkuð jafnt á milli jarðvísinda, náttúruvísinda, verkfræði og samfélagsmála. Upphæð styrkja er á bilinu 700.000 til 6 milljóna kr. Frá upphafi hafa 482 verkefni hlotið styrki að upphæð samtals tæpir 1,2 milljarðar króna og er þá ekki framreiknað til núvirðis.
Jóna óskaði styrkþegum til hamingju og bað þeim velfarnaðar í komandi verkefnum.





