Allir strengir stilltir saman

26.03.2026Vaðölduver

Fulltrúar allra þeirra sem koma að fyrirhuguðum flutningum vindmylla í Vaðölduver í vor komu saman á vinnustofu á Hótel Selfossi í gær. Um hálft hundrað manna bar þar saman bækur sínar, frá Landsvirkjun, Vegagerðinni, lögreglunni, Samgöngustofu, Landsneti, Rarik, sveitarfélögum á svæðinu og ýmsum verktökum.

Fundurinn á Hótel Selfossi var afar fjölsóttur.
Fundurinn á Hótel Selfossi var afar fjölsóttur.

Allir strengir stilltir saman

Skoða vefsíðu flutningana

Ásbjörg Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Framkvæmda hjá Landsvirkjun bauð hópinn velkominn. Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnisstjóri Vaðölduvers, tók svo við, sýndi myndband um flutningana og hélt stutta tölu þar sem hann fór yfir stöðu framkvæmda við Vaðöldu, flutningsleiðina og markmið vinnustofunnar.

Aldrei áður hafa jafn margir flutningar í yfirstærð verið fluttir á jafn mörgum vikum. Sigurgeir þakkaði Vegagerðinni sérstaklega þolinmæðina við undirbúning, sem og sveitarfélögum á svæðinu, en flutningarnir fara um 5 sveitarfélög, auk þess að hafa óhjákvæmilega áhrif á íbúa nágrannasveitarfélaga sem þarna fara um. Þá hefði lögreglan lagt róandi hönd yfir verkefnið með yfirvegun í allri nálgun, enda væri þarna ekkert nýtt undir sólinni í hennar augum, þótt vissulega væru flutningarnir af annarri stærðargráðu en áður hefði þekkst. Sigurgeir sagði þá enn ótalda ýmsa verktaka sem kæmu t.d. að vegbótum á flutningsleiðinni.

Sigurgeir yfirverkefnisstjóri tekinn tali fyrir fund.
Sigurgeir yfirverkefnisstjóri tekinn tali fyrir fund.

Þegar haldin var vinnustofa fyrir rúmu ári var mikið rætt um hvort vegir á leiðinni þyldu flutningana. Sigurgeir sagði að þar yrði engin áhætta tekin. Vegir myndu þola flutning á íhlutum vindmylla en enn væri verið að skoða hvort grípa þyrfti til sérstakra ráðstafana vegna flutninga á spenni Vaðölduvers, en það er þyngsti einstaki flutningur sem sögur fara af hér á landi, um 270 tonn og verður fluttur á 20 öxla vagni.

Stefnt er að því að fyrstu flutningar, á fyrri 14 vindmyllunum, verði í lok fyrstu viku maí og þeir síðustu verði í lok júní. Síðari 14 vindmyllurnar verða svo fluttar á sama tíma að ári.

Framkvæmdir við þjónustuhús á Hellu hefjast í maí og það á að vera tilbúið undir lok næsta árs.

Grænt ljós á brýr

Vegagerðin hefur metið flutningaleiðina, einstaka vegkafla og brýr. Einar Óskarsson verkfræðingur sagði að margar brýr hér á landi hefðu verið byggðar á þeim tíma þegar flutningabílar voru mest 20 tonn. Núna þyrfti að sækja um undanþágu ef flutningar færu yfir 49 tonn. Helstu áskoranir við þungaflutninga yfir brýr eru einbreiðar brýr, sem bera ekki breiða vagna, langar brýr, þar sem allur heildarþungi flutnings hvílir á brúnni i einu eða gamlar brýr, sem ekki þola meira en 20 tonn.

Einar Óskarsson fór yfir verkefnið frá sjónarhorni Vegagerðarinnar.
Einar Óskarsson fór yfir verkefnið frá sjónarhorni Vegagerðarinnar.

Tvær brýr þurfti að skoða sérstaklega fyrir komandi vindmylluflutninga, 360 m langa brú á Ölfusárósum og Þjórsárbrú, sem er 170 m. Kom fljótt í ljós að brúin yfir Ölfusárósa var fullnægjandi, þegar búið var að fjölga öxlum á flutningabílum og lengja þá. Þjórsárbrúin var hins vegar alveg á mörkum þess að teljast að fullu örugg, samkvæmt ítarlegum reiknilíkönum Verkís. Leitað var til danskra ráðgjafa, sem hafa reynslu af sambærilegum flutningum yfir brýr í Danmörku. Gerðar voru ítarlegar álagsprófanir á Þjórsárbrú. Allar prófanir gengu mjög vel og brúin stóð sig betur en hið varkára reiknilíkan hafði gert ráð fyrir. Þar með gaf Vegagerðin grænt ljós á flutningana yfir brúna.

Einar hrósaði öllum sem að verkinu hafa komið, þar væri hvergi komið að tómum kofanum og fagmennskan í fyrirrúmi.

Sérhönnuð skip, bílar og vagnar

Enercon heitir þýskur framleiðandi vindmyllanna og tveir fulltrúar hans, þeir Marcus Olofsson og Roman Lemmen, röktu flutninga vindmyllanna til landsins, hvernig þeim yrði komið fyrir í sérhönnuðum flutningaskipum erlendis og skipað upp í Þorlákshöfn og hvernig flutningum í Vaðölduver yrði háttað, á sérstökum flutningabílum og vögnum. Reyndir verktakar, sem hafa sérhæft sig í slíkum flutningum, hafa verið ráðnir til verksins.

Flutningaskipið E-ship I getur flutt tvær vindmyllur í einni ferð.
Flutningaskipið E-ship I getur flutt tvær vindmyllur í einni ferð.

Lítið um lokanir

Garðar Már Garðarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, sagði að þetta væri vissulega stórt verkefni en að mati lögreglunnar væri undirbúningurinn góður og helsta viðfangsefni lögreglunnar væri að manna vaktir í flutningunum. Allt yrði þetta leyst. Lítið yrði um lokanir, þá einna helst við gatnamót á meðan flutningar færu þar um. Bílar sem kæmu á móti yrðu að færa sig út í kant og bíða meðan flutningar færu hjá og bílar sem á eftir kæmu yrðu einfaldlega að bíða, ekki yrði leyft að taka fram úr flutningunum. Þar yrði að sjálfsögðu gerð undantekning fyrir neyðarakstur, þ.e. sjúkrabíla, slökkvilið og lögreglu.

Þá sagði Garðar að ef aðrir þungaflutningar væru á svæðinu á svipuðum tíma yrði gætt að því að skipuleggja þá með þeim hætti að ekki hefði áhrif á þessa.

Samskipti og upplýsingar

Í kaffihléi voru fjörugar umræður gesta enda hafði margt áhugavert komið fram í erindunum.

Sigurgeir steig svo aftur í pontu og fjallaði að þessu sinni um samskiptaáætlanir og hvernig Landsvirkjun ætlaði að upplýsa allt fólk sem flutningarnir gætu mögulega snert. Það á við um íbúa á svæðinu, fyrirtæki, ferðaþjónustu og ýmsa hagaðila aðra. Sigurgeir sagði megináherslu á að tryggja tímanlega, örugga og gagnsæja upplýsingagjöf. Markmiðið væri að lágmarka truflun á samfélagi og þjónustu og hjá fyrirtækjum, styðja við örugga framkvæmd flutninga og byggja upp traust og jákvætt viðhorf til flutninganna.

Hann sagði að lögð hefði verið áhersla á að greina hverjir yrðu fyrir áhrifum af flutningunum, hvort sem það væri almenningur, sveitarfélög, einstaka landeigendur, ýmsir leyfisveitendur eða aðilar í ferðaþjónustu.

Gætt að viðhaldi á vegum

Í máli gesta kom fram að almenningur hefði áhyggjur af álagi á vegina á flutningsleiðinni. Sigurgeir sagði að vegir yrðu ástandsmetnir fyrir flutninga og eftir og þess yrði gætt að ekki yrði skilið við vegina í verra ástandi en komið væri að þeim. Ef vegir skemmast þá verða þeir lagfærðir.

Ásbjörg Kristinsdóttir bætti þar við, að töluverð uppbygging vega hefði verið á svæðinu í tengslum við virkjanaframkvæmdir Landsvirkjunar og Búðafossvegur og -brú yrðu mikil samgöngubót á svæðinu. Hún sagði mikla áherslu á að ganga vel um auðlindir og innviðir á svæðinu féllu þar undir.

Unnið að vegaframkvæmdum á Landvegi.
Unnið að vegaframkvæmdum á Landvegi.

Gunnar Aron Ólason, upplýsingafulltrúi nýframkvæmda, lýsti samráði við ferðaþjónustuna. Vissulega væru þessir flutningar að kvöld- og næturlagi, en mikilvægt að allir hefðu greiðan aðgang að upplýsingum um þá. Upplýsingum yrði m.a. komið á framfæri á vefsíðum sveitarfélaga, í hópum íbúa á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum, á hótelum, bílaleigum o.fl.

Þá nefndi Sigurgeir viðbragðsáætlanir sem tryggja að brugðist verði við á réttan hátt, ef eitthvað ber út af við flutningana, hvort sem það eru tafir, bilanir, óhöpp eða annað.

Í lok fundar gekk hljóðnemi milli fulltrúa á fundinum. Þeir lýstu allir ánægju með góða undirbúningsvinnu og upplýsingagjöf sem væri grunnur þess að vel tækist til, sem og ánægju með að boðað væri til vinnustofu af þessum toga.

Fréttir af fundinum

Fréttastofur RÚV og Sýnar fjölluðu ítarlega um fundinn á Hótel Selfossi i kvöldfréttum.