Auglýst eftir umsóknum í Orkurannsóknasjóð

15.12.2023Fyrirtækið

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í Orkurannsóknasjóð Landsvirkjunar. Markmið sjóðsins er að veita styrki til námsfólks og rannsóknarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga.

Umsóknarfrestur til og með 12. janúar

Orkurannsóknasjóður hefur í gegnum árin veitt fjölmarga styrki í öflug og fjölbreytt rannsóknarverkefni. Í þessari úthlutun eru til ráðstöfunar um 70 m.kr til rannsóknarverkefna á sviði umhverfis- og orkumála.

Umsóknarfrestur er út föstudaginn 12. janúar 2024. Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarform að þessu sinni.

Allar upplýsingar um Orkurannsóknasjóð, úthlutunarreglur, stofnskrá o.fl. má nálgast á vefsvæði sjóðsins.