Dæmt um form, ekki efni
Landsvirkjun mun áfram vinna orku úr endurnýjanlegum orkugjöfum í þágu almennings og atvinnulífs og auka þá orkuvinnslu í takt við vaxandi kröfur samfélagsins. Mistök við lagasetningu fyrir 14 árum verða eflaust til þess að tefja uppbyggingu Hvammsvirkjunar en þær tafir stafa ekki á nokkurn hátt af því að áformum okkar sé ábótavant. Hvammsvirkjun er vandað og vel undirbúið verkefni og þegar hverflar virkjunarinnar fara að snúast fáum við langþráða orku til orkuskipta, nýsköpunar og áframhaldandi velsældar.
Nokkuð hefur borið á misskilningi í kjölfar dóms Hæstaréttar sem féll sl. miðvikudag og fullyrðingar heyrst um að nú sé Hvammsvirkjun jafnvel úr sögunni. Ekkert er fjær lagi.
Í málinu komst æðsti dómstóll landsins að þeirri niðurstöðu að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar væri ógilt. Ekki vegna þess að neitt væri athugavert við hönnun virkjunarinnar, áætlanir um uppbyggingu hennar eða væntanlegan rekstur. Ástæðan var sú ein, að Alþingi voru mislagðar hendur þegar ný lög voru sett um stjórn vatnamála árið 2011. Fyrir mistök var ein lagagrein orðuð eins og Alþingi væri þar að banna allar framkvæmdir sem hafa áhrif á vatn (á vatnshlot, eins og það er kallað). Það var þó alveg ljóst af umræðum á þingi á þeim tíma að Alþingi ætlaði sér aldrei að leggja allsherjar bann við t.d. brúarsmíði, hafnargerð eða vatnsaflsvirkjunum.