Rótorar aðstoða við siglinguna
Hingað til hafa borist hlutar sem nema einni og hálfri vindmyllu í hverri skipaferð, en ENERCON E-Ship 1 er ekkert venjulegt flutningaskip. Það er sérstaklega hannað til að flytja stóra vindmylluhluta og getur því flutt fjórar í einu.

Á þilfarinu eru fjórir, háir Flettner-rótorar, sem nýta vindorku til að aðstoða við að knýja skipið áfram. Tæknin byggir á svokölluðum Magnus-áhrifum þar sem snúningssívalningar skapa kraft sem styður við siglinguna. Fyrir vikið notar skipið allt að fjórðungi minni olíu en skip af sambærilegri stærð.





