Fyrsta hús á fjölnýtingarlóð
Hluti lóðar milli skiljustöðvar og aflstöðvar Landsvirkjunar er svokölluð fjölnýtingarlóð þar sem Landsvirkjun vonast til að geta stutt við ýmis nýsköpunarfyrirtæki þegar fram líða stundir.
Fyrsta húsið verður 126 fermetra hús sem leigt verður til GeoSilica. Vonir standa til að starfsemi geti hafist sumarið 2026, en framkvæmdir við lóðina hófust í lok apríl.
Samið var við byggingarverktakann Rein um byggingu hússins. Vinnuvélar Eyþórs sjá um jarðvegsvinnu.
Í húsinu verður framleiðslusvæði og rannsóknarstofa til efnagreininga, ásamt skrifstofu og góðri gestamóttöku, þaðan sem hægt verður að horfa yfir framleiðsluna.
Húsið tekur mið af byggingum í kring og fellur vel að þeim.
GeoSilica var fyrst fyrirtækja til að tryggja sér húsnæði á fjölnýtingarlóðinni. Þá var jafnframt samið við fyrirtækið um afhendingu auðlindastrauma á Þeistareykjum og samstarf til næstu ára.





