Fyrstu flutningar gengu vel

07.05.2026Vaðölduver

Flutningar fyrstu vindmylluhlutanna fyrir Vaðölduver hófust í nótt. Öflugur undirbúningur og víðtækt samstarf fjölmargra aðila tryggðu að flutningarnir gengu vel í alla staði.

Flutningslestin á mótum Gaulverjabæjarvegar og Hringvegar
Flutningslestin á mótum Gaulverjabæjarvegar og Hringvegar

Fyrstu flutningar gengu vel

Sjá meira um flutningana

Töluverð eftirvænting ríkti í Þorlákshöfn við upphaf flutninga fyrstu vindmylluhlutanna fyrir Vaðölduver í nótt. Lagt var af stað skömmu eftir miðnætti og var lestin komin á áfangastað fyrir klukkan fimm í morgun. Allt gekk vel, umferð gekk greiðlega og allar áætlanir stóðust.

Mikill undirbúningur liggur að baki flutningunum, enda eru vindmylluhlutarnir stórir og flutningarnir krefjandi. Í fyrstu ferðinni voru fluttir tveir spaðar, turnhluti, miðhluti rafala, tveir hliðarhlutar rafala og tveir gámar með fylgibúnaði.

Góður undirbúningur skilaði sér

Sjá meira um Vaðölduver

Mikil ánægja er með hvernig til tókst í fyrstu ferðinni. Flutningarnir voru vandlega skipulagðir og unnir í góðu samstarfi við lögreglu, Vegagerðina, flutningsaðila og aðra sem komu að verkefninu. Lögregla stýrði umferð og fylgdi flutningunum eftir af mikilli fagmennsku. Undirbúningur Vegagerðarinnar skilaði sér einnig vel, bæði hvað varðar flutningsleiðina og þær ráðstafanir sem þurfti að grípa til áður en flutningar gátu hafist.

„Við erum mjög ánægð með hvernig þessi fyrsti flutningur gekk. Þetta er mikilvægur áfangi fyrir Vaðölduver og það er ánægjulegt að sjá hversu vel samstarfið gekk á milli allra aðila. Flutningarnir fóru fram samkvæmt áætlun, umferð gekk vel og öryggið var í fyrirrúmi alla leið,“ segir Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri Vaðölduvers.

Afferming fyrstu hlutanna fór fram við Vaðölduver í morgun og undirbúningur fyrir næstu flutninga er þegar hafinn. Næsti flutningur verður í nótt og svo verður sex nætur vikunnar næstu 7-9 vikur.