Ábyrg nýting auðlinda
Við Íslendingar erum auðug af náttúruauðlindum og höfum nýtt náttúruna okkur til hagsbóta. Við njótum þeirra forréttinda að nýta vatnsafl, jarðvarma og vind til orkuvinnslu og erum því minna háð jarðefnaeldsneyti en flestar aðrar þjóðir.
Landsvirkjun hefur alltaf unnið að uppbyggingu orkuinnviða með virðingu fyrir náttúru landsins að leiðarljósi, vandað til verka þannig að eftir er tekið samhliða því að stuðla að öflugu atvinnulífi víða um land og þeim lífsgæðum sem við flest lítum á sem sjálfsögð. Fyrri kynslóðir tryggðu okkur græna orku með framsýni sinni og við erum stolt af því að tryggja hag komandi kynslóða á sama hátt.
Nýting auðlinda felur í sér inngrip í náttúruna sem óhjákvæmilega veldur raski á umhverfinu. Það að nýta endurnýjanlegar auðlindir gerir raforkuvinnslu okkar umtalsvert umhverfisvænni en ef svo væri ekki, en slík nýting felur eins og önnur í sér inngrip í náttúru og rask á umhverfi. Það er á okkar ábyrgð að lágmarka þetta rask eins og kostur er til að draga úr fórnarkostnaði áhrifa á náttúru á móti efnahags- og samfélagslegum ávinningi.





