Í hvað á orkan að fara?

05.11.2025Fyrirtækið, Orka

Haustfundur Landsvirkjunar var haldinn fyrir fullum sal á Hilton Reykjavík Nordica.

Rætt um raforkumarkað og forgangsröðun

Horfa á haustfundinn

Á fundinum var fjallað um hvernig viljum við að raforkumarkaðurinn þróist, hvort forgangsraða eigi orku til heimila og smærri fyrirtækja, hvort við getum áfram tryggt alþjóðlega samkeppnishæfni fyrir stórnotendur, en jafnframt séð til þess að ljósin haldist kveikt og símarnir hlaðnir á heimilum landsins.

Skýrt svar fékkst við spurningunni um hvort heimili og smærri fyrirtæki ættu að keppa við stórfyrirtæki um raforkuna. „Nei“ sögðu öll þau sem tóku þátt í pallborði, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, forstjóri Landsvirkjunar, forstjóri Landsnets, formaður Sjálfstæðisflokksins og sérfræðingur ASÍ.

Ítarlega frásögn og upptöku af fundinum er að finna hér