Allur arður af Vaðölduveri rennur til Landsvirkjunar
Landsvirkjun mun eiga og reka allar vindmyllurnar í Vaðölduveri, rétt eins og aðrar aflstöðvar fyrirtækisins, hvort sem það eru vatnsafls- eða jarðvarmavirkjanir okkar.
Nokkuð hefur borið á umræðu á annan veg, þ.e. að rekstur versins verði í höndum vindmylluframleiðandans Enercon og að það fyrirtæki muni njóta hagnaðar af þeim rekstri. Þennan misskilning má eflaust rekja til þess að Landsvirkjun hefur gert þjónustusamning við Enercon, sem hefur gríðarmikla reynslu á þessu sviði, um að sinna viðhaldi á vindmyllunum og vera okkur til ráðgjafar við rekstur þeirra. Sá samningur er ekkert frábrugðinn öðrum samningum þar sem verktakar sinna ákveðnum verkefnum á okkar vegum, til dæmis um snjómokstur á starfssvæðunum okkar.
Enercon hefur ráðið til sín frábæra rafvirkja af Suðurlandinu sem annast viðhaldið á komandi árum, undir styrkri stjórn sérfræðinga fyrirtækisins. Með þessu móti tryggjum við okkur sérfræðiþekkingu Enercon á rekstri og viðhaldi vindorkuvera – þekkingu sem núna er hvergi að finna hér á landi - og munum læra heilmikið af því.
Landsvirkjun, orkufyrirtæki þjóðarinnar, mun eiga allar vindmyllurnar að fullu og fá allan arð af rekstri þeirra.





