Notkun jarðefnaeldsneytis hætt í Kröflustöð

31.10.2025Orka, Umhverfi

Nýverið var stigið mikilvægt skref á Mývatnssvæði í átt að vistvænni starfsemi þegar alfarið var hætt að nota jarðefnaeldsneyti í Kröflustöð.

Hildur Vésteinsdóttir verkefnastjóri og Elvar Magnússon stöðvarstjóri glöð í bragði með VLO á tankinum.
Hildur Vésteinsdóttir verkefnastjóri og Elvar Magnússon stöðvarstjóri glöð í bragði með VLO á tankinum.

Notkun jarðefnaeldsneytis hætt

Meira um Kröflustöð

Nýverið var stigið mikilvægt skref á Mývatnssvæði í átt að vistvænni starfsemi þegar alfarið var hætt að nota jarðefnaeldsneyti í Kröflustöð.

Áður voru notaðir fjórir orkugjafar á svæðinu; dísilolía, lituð dísilolía, bensín og steinolía. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að skipta þessum orkugjöfum út fyrir rafmagn og hafist handa við að skipta út bílum sem gengu fyrir jarðefnaeldsneyti fyrir rafmagnsbíla. Í þeim tilvikum þar sem ekki var hægt að nota rafmagnsbíla var notuð vetnismeðhöndluð lífolía (VLO) á alla dísilbíla á Mývatnssvæði frá árinu 2017. Notkun á henni hefur reynst vel og aukist jafnt og þétt á síðustu árum.

Þróun í olíunotkun á Mývatnssvæði síðustu ár.
Þróun í olíunotkun á Mývatnssvæði síðustu ár.

Um síðustu áramót var ákveðið að hætta alfarið kaupum á jarðefnaeldsneyti á svæðinu og hætta þar með að nota litaða dísilolíu á vinnuvélar, tæki og varaafl og nota aðeins VLO auk rafmagns. Í síðustu viku kláruðust þær birgðir sem til voru af litaðri olíu í Kröflustöð og því voru ánægjuleg tímamót þegar Olíudreifing mætti á svæðið miðvikudaginn 22. október með 20 þúsund lítra af vetnismeðhöndlaðri lífolíu. Öll tæki í Kröflustöð eru nú knúin af VLO í stað jarðefnaeldsneytis.

Þeistareykir næstir á dagskrá

Sjá aðgerðaáætlun í loftslags- og umhverfismálum

Enn er dálítið af litaðri olíu eftir á Þeistareykjum, en þó styttist jafnt og þétt í að olíutankarnir þar verði fylltir af VLO og Mývatnssvæðið verði þannig fyrsta jarðefnaeldsneytislausa starfsvæði Landsvirkjunar, sem er stór áfangi í átt að markmiði fyrirtækisins um að hætta kaupum á jarðefnaeldsneyti árið 2030.

VLO hefur reynst Landsvirkjun bæði hagkvæmur og umhverfisvænn kostur og notkun þess sem eldsneytis samræmist markmiðum Landsvirkjunar og stjórnvalda um sjálfbærni og minna kolefnisspor.