Starfsfólkið segir söguna - ársskýrslan komin út

03.03.2026Fyrirtækið

Ársskýrsla Landsvirkjunar 2025 er komin út, á breyttu formi. Að þessu sinni byggir skýrslan á viðtölum við starfsfólk, sem segir frá starfsemi ársins með eigin orðum.

Forsíða ársskýrslunnar 2025
Forsíða ársskýrslunnar 2025

Ný framsetning í ársskýrslu

Skoða ársskýrsluna 2025

Ársskýrsla Landsvirkjunar 2025 er komin út, á breyttu formi. Að þessu sinni byggir skýrslan á viðtölum við starfsfólk, sem segir frá starfsemi ársins með eigin orðum.

Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri og Hörður Arnarson forstjóri eru meðal viðmælenda í ársskýrslunni
Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri og Hörður Arnarson forstjóri eru meðal viðmælenda í ársskýrslunni

Viðtölin í skýrslunni eru birt á myndbandi og í rituðu formi. Hvert þeirra hefur sína lendingarsíðu á vef ársskýrslunnar, þar sem myndband er efst og texti fyrir neðan. Markmiðið er að gera ársskýrsluna aðgengilegri, léttari og persónulegri, án þess að draga úr faglegri upplýsingagjöf um starfsemi ársins.

Ársskýrslan er jafnframt aðgengileg á PDF-formi. Í fremri hlutanum eru viðtölin en aftast er sjálfbærnitafla með upplýsingum samkvæmt ESRS-staðlinum.