UBA afléttir innflutningsbanni á íslenskar upprunaábyrgðir

27.07.2023Viðskipti

UBA, Umhverfisstofnun Þýskalands, hefur aflétt banni við innflutningi upprunaábyrgða frá Íslandi til Þýskalands. Þar með hefur öllum höftum á viðskipti með íslenskar upprunaábyrgðir verið aflétt.

Ákvörðun UBA um að stöðva innflutning íslenskra upprunaábyrgða í Þýskalandi byggði á útflutningsbanni AIB, evrópskra samtaka útgefenda upprunaábyrgða, sem var aflétt 1. júní síðastliðinn. Bannið var rökstutt með því að grunur væri um að vinnsla grænnar orku væri tvítalin hérlendis, þar sem stærstu orkunotendur hérlendis hefðu fullyrt að þeir notuðu græna orku í starfsemi sinni, án þess að hafa keypt upprunaábyrgðir sem heimiluðu þeim slíkt.

Eftir nánari athugun hefur UBA ákveðið að aflétta banninu þar sem sýnt hefur verið fram á að íslenskir raforkuframleiðendur tvítelji ekki grænan eiginleika orkuvinnslu sinnar.