Yfirgripsmikil og áhugaverð dagskrá
Ársfundur Landsvirkjunar árið 2026 var haldinn fyrir fullum sal í Silfurbergi í Hörpu þriðjudaginn 3. mars. Fundurinn bar yfirskriftina Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni, en eins og yfirskriftin gefur til kynna var megináhersla fundarins á þá staðreynd að íslensk raforkuvinnsla er í harðri samkeppni við raforkuvinnslu í öðrum löndum. Um 400 gestir mættu í Hörpu og ríflega 1.000 horfðu á beint streymi frá fundinum.
Á dagskrá voru ávörp Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra og Brynju Baldursdóttur stjórnarformanns Landsvirkjunar. Þeir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar stigu einnig á svið og ræddu stöðuna í orkumálum ítarlega við Þóru Arnórsdóttur sem stýrði fundinum. Þá héldu þær Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri, og Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu, fróðleg og yfirgripsmikil erindi.
Á vefsíðu fundarins er hægt að horfa á upptöku, lesa ítarlega umfjöllun um hvert erindi og skoða ljósmyndir.





