Auglýst eftir sumarstarfsfólki

15.01.2024Fyrirtækið

Nú höfum við opnað fyrir umsóknir um störf hjá Landsvirkjun sumarið 2024. Í boði eru fjölmörg störf fyrir öflugt ungt fólk, bæði á aflstöðvum okkar um allt land en einnig í Reykjavík.

Síðasta sumar komust færri að en vildu; en þá sóttu alls 606 háskólanemar og ungmenni um 161 sumarstörf víðsvegar um landið.

Hægt er að kynna sér störfin og sækja um á landsvirkjun.is/sumarstorf

Kynntu þér sumarstörfin