Kæra send til áfrýjunarnefndar

20.09.2025Fyrirtækið

Landsvirkjun hefur kært ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 18. ágúst til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Kæra send til áfrýjunarnefndar

Landsvirkjun hefur kært ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 18. ágúst til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Jafnframt hefur lögmaður Landsvirkjunar í málinu, Hörður Felix Harðarson, sent Samkeppniseftirlitinu bréf þar sem fyrirspurn eftirlitsins um ýmislegt sem kom fram í svargrein forstjóra Landsvirkjunar við ákvörðuninni, er svarað.

Í ákvörðuninni komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Landsvirkjun hefði selt Landsneti rafmagn á of lágu verði á árunum 2017 til 2021. Í lok þeirrar sömu viku sendi Hörður Arnarson forstjóri frá sér grein þar sem hann fór ítarlega yfir afstöðu Landsvirkjunar í málinu. Samkeppniseftirlitið svaraði með fyrirspurn og pistli á eigin vef þar sem réttu máli var hallað.

Mótmælir aðdróttunum

Í bréfi Harðar Felix kemur meðal annars fram að Landsvirkjun hafi talið allar forsendur til að ljúka málinu með sátt. Það sé röng og tilefnislaus aðdróttun að Samkeppniseftirlitið kunni að hafa verið blekkt til að fallast á sáttaviðræður.

Hörður Felix mótmælir einnig ummælum Samkeppniseftirlitsins í þá veru að forstjóri Landsvirkjunar hafi ekki farið rétt með í umfjöllun sinni um milliliði á raforkumarkaði. Alvarlegastar eru þó ályktanir Samkeppniseftirlitsins um að starfsfólk Landsvirkjunar hafi af ásetningi brotið gegn banni við misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Markaður aldrei skilgreindur

Bréf lögmannsins til Samkeppniseftirlitsins

Lögmaðurinn bendir jafnframt á þá óumdeildu staðreynd að markaður fyrir flutningstöp hafi aldrei verið skilgreindur sem sjálfstæður markaður hérlendis. Samkeppniseftirlitið vísi til innanhússgagna Landsvirkjunar, að því er virðist til stuðnings því að Landsvirkjun hafi átt að vera ljóst að slíkur markaður væri til og að Landsvirkjun væri markaðsráðandi á þeim markaði. Ekkert í gögnunum gefur tilefni til slíkra ályktana, hvað þá til að álykta um að ásetningur Landsvirkjunar hafi staðið til ólöglegrar háttsemi.

Málinu hefur nú verið vísað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, en samkvæmt samkeppnislögum skal úrskurður hennar liggja fyrir innan sex vikna frá áfrýjun.