Frá hásæti orkudrottningar
Á rúmlega 60 ára starfsævi sinni hefur orkufyrirtæki þjóðarinnar unnið mjög ötullega að ýmiss konar umhverfismálum, náttúruvernd og loftslagsmálum. Við hjá Landsvirkjun gerum okkur mjög vel grein fyrir áhrifum starfsemi okkar á umhverfið og leitumst við að lágmarka þau með öllum ráðum.
Eftir ársfund Landsvirkjunar var okkur bent á ýmislegt sem betur mætti fara og við fögnum því. Það er mikilvægt fyrir okkur að hluta á gagnrýnisraddir og bregðast við því sem betur má fara en ég geri þó þá kröfu að gagnrýnin sé málefnaleg. Á tímum þegar jafnréttisbarátta síðustu áratuga á undir högg að sækja þykir mér áríðandi að svara sérstaklega grein sem birtist á Vísi undir yfirskriftinni Orkudrottningar Orkueyjunnar. Í henni var talið sérstaklega ámælisvert að á ársfundi Landsvirkjunar hinn 3. mars hafi kynsystur greinarhöfundar og jafnöldrur, „fluggáfaðar í fallegum fötum“ verið í brúnni og flutt „boðskapinn, hvert einasta orð borið fram skýrt og með þunga“.
Yfirskrift greinarinnar vísaði augljóslega til þeirra kvenna sem stigu þarna á svið fyrir hönd Landsvirkjunar. Það var ég sem aðstoðarforstjóri og að auki var það stjórnarformaður fyrirtækisins, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu og forstöðumaður Samskipta. Það hvarflar ekki að mér að biðjast afsökunar á því að allar höfum við verið vel undirbúnar og flutt mál okkar af þekkingu og öryggi. Eins og áður segir þá fögnum við gagnrýni en það er eðlileg krafa að slík gagnrýni sé fagleg en vísi ekki til þess að við séum vel klæddar konur, samstilltar eins og í „stafrænu hljóðblöndunartæki“, eins og kynsystir okkar og jafnaldra orðar það. Ég hélt að slíkur málflutningur tilheyrði liðinni tíð.
Megintilgangur skrifanna virðist þó vera að kvarta undan því að ársfundurinn í ár fjallaði ekkert um umhverfismál eða náttúruvernd og sjálfsagt að svara því.





